06. nóvember 2008 klukkan 13:07
Ég fékk skilaboð inni á facebook frá Baldrúnu, fannst ég bara verð að setja hér inn líka, aldrei að vita nema einhver sjái þetta hér þó hann kíki ekki reglulega á facebook, en það er áætlað að reyna að hittast í Reykjavíkinni 21-23 nóvember...
Bara kíkja í bíó og borða eða eitthvað jafn einfallt...
Annars bara hvet ég alla til að mæta, kemst reyndar ekki þessa helgi en verð helgina á eftir, aldrei að vita nema ég kalli þá í liðið...
en bið að heilsa öllum okkar meðlimum þarna úti...
kv. Guðrún Ásta
18. september 2008 klukkan 15:41
jæja kæru limir þetta gengur bara ekki...
ekkert blog í langan tíma og er ég alls ekkert skást... meira að segja langt síðan ég hef bloggað hér...
en hvernir ætla á laufskálaréttarbalið...
er farið að laga að vita hvaða limi maður fær að hitt...
ég ætla ;) kv Signý
Sófus Vistarson
09. maí 2008 klukkan 18:42
sælir limir nær og fjær!!
við Guðrún Ásta vorum að ræða málið í vikunni, hún og Bjarni komu í mat til mín, og það sem var rætt var sófagengishittingur!! þar sem virðist að við flest eða ekki bara öll verðum mjög upptekin í sumar í vinnu því um líkt...EN þá fengum við góða hugmynd 
hvernig lýst ykkur á að leigja sumabústað í Varmahlíð helgina þegar laufskálaréttarballið er?????
það er dágóður tími í í þetta þannig að það er hægt að plana þetta svoldið vel..allir geta reynt sitt til að vera í fríi þarna eða redda sér fríi...það er hægt að hafa samband við alla limina, gamla og nýja..svo er bara að vonast til að flestir eða bara allir að sjálfsögðu geti komið..
við bara verður að reyna þetta því það er alltof langt síðan við hittumst síðast og gerðum eitthvað saman ...því þetta er góður hópur og skemmtilegt fólk eins og þið vitið 
núna er bara málið að spýta í lófana pæla í þessu og skrifa hvað ykkur finnst!!!
Sóley - HAIRGIRL
Sófus Vistarson
28. apríl 2008 klukkan 21:49
Hvað segiði bestu vinir í heimi? ;) Sakna ykkar.. þurfum að fara að hittast öll á Króknum og rifja upp gamla tíma :P Áður en andlega heilsan mín hrundi! ;) Er að eiga....slæman klukkutima, annars hefur mér liðið vel.. So no worries ;)
Mér hefur miðað mikið áfram undanfarnar vikur :) Maður þarf greinilega að sökkva alveg niður áður en maður getur farið að láta sér líða betur.
Svoo... Chandler looks gay hah? ;)
I want a beer!!! Þarf reyndar ekki nema að labba nokkur skref til að komast í lyftuna, og svo er ég nánast kominn á barinn....en nenni ekki að hlusta á röfl og nöldur í fólki lengur ;)
Sófus Vistarson
08. apríl 2008 klukkan 23:02
Nú vantar mig svör...
búin að komast að því að Halla og Signý vinna sömu helgar og því ætlum við pínu að miða við að það verði á fríhelgi hjá þeim!!
Annað sem var að vakna í hausunum á mér og Sóley er að ef við verðum hér í eyjafirðinum er meiri möguleiki að Eydís og Davíð geti látið sjá sig, jafn vel Frikki og svo erum við hér og Signý ekki langt frá!
allaveganna if you like it tell us!!!
Oddur getur fengið vinnubústaðin við selfoss og þar, en það er frekar langt að fara!
Allaveganna nokkur orð...
helgar sem koma til greina eru, 25 apríl og 23 maí... eða þær helgar... þannig að hvor hentar betur, svör sem fyrst!!
Sófus Vistarson
11. mars 2008 klukkan 18:44
fyrsta tillaga að djammi sófa lima, held að ekkert sé um að vera á þessum tíma, en auðvita ef þið eruð með aðrar hugmyndir endilega hafið samband.
Fyrirhugaður hittingur er reyndar bara á Akureyri, þar sem allaveganna 3 íbúðir tilheyra sófalimum ættu allir að geta fengið gistingu einhversstaðar, getum bara safnað dýnum, sjálf á ég nóg af auka sængum og koddum!!!
Komum nú öll saman og gerum betur en í bústaðnum, nú höfum við eitthvað að Toppa!!!
Væri líka gaman að fara aftur í bústað, ef þið hafið eitthvað svoleiðis upp í erminni, eitthvað vinnutengt eða fjölskyldutengt...
Koma svo!!!
Sófus Vistarson
27. febrúar 2008 klukkan 20:56
Nei, held að síðan sé alveg dauð!!!
komin meira en mánuður frá síðasta bloggi...
Hefur enginn neitt að segja, nú er ég með sér blogg og ég bara verð að hafa eitthvað að viti hér líka...
allaveganna með 10 daga mun, hvernig er það er málið að reyna að hittast??
hvernig er það??
hverjir eru á lífi, hvað eruð þið að gera, haldið þið að þið getið bloggað eina færslu fyrir sumarið??
kv. Sveitastelpan í næstum borginni
Sófus Vistarson
25. janúar 2008 klukkan 16:58
Jæja í dag á einn limurinn afmæli... hver veit hvar... auðvitað vita það allir...
En gamlinginn hann Oddur er orðin 22 ára gamall, semsagt búin að ná Mér og Signý, ekki amarlegt það..
Ég samt heyrði að það ætti að verða smá afmælisgeym um næstu helgi, en þar sem enginn nennir að vinna í bakaríi þá er ég föst í vinnu, bæði þennan og næsta laugadag, er að vinna í annari vinnu, vona bara að það fari eitthvað að gerast í þeim málum.
En vildi bara segja til hamingju með afmælið hnoðrinn okkar, 22 er ekki svo slæmt, allaveganna ekki það sem af er liðið!!
Knús á ykkur öll, Sveitastelpan, lofaða og á mörkunum að byrja að búa...
Sófus Vistarson
16. janúar 2008 klukkan 20:03
hvað er að frétta?? eigum við að ræða þig eitthvað freakar? nei hélt ekki ...haha næturvaktin klikkar ekki...sýnist bara að flestir sófagengislimir sé að fíla þessa þætti, enda tær snilld þarna á ferð!!!
ágætt að frétta frá mér, komin með vinnu sem gæslumanneskja í Glerárskóla hérna á Akureyri. verð að vinna frá 1-5 sem er fínn tími því ég ætlaði ekki að vera í fullri vinnu...ég er komin með Sveiflu hingað á Akureyri, hryssan mín, og það gengur bara vel með hana, hlýðin og ljúf við mig og gerir vel það sem ég læt hana gera, 7.9.13.....svo á laugardaginn ef ekkert kemur uppá þá kemur Tumi minn vííí...ég og Helga rennum sjálfsagt yfir í Skagafjörðinn með kerru og pikkum kjéllinn upp!!!
verð í smá utanskólanámi í vetur, tek ensku 703, næringarfræði 213 og sálfræði 403..fínt að taka fög sem ég er frekar góð í og treysti mér að taka utanskóla..
en við þurfum að fara að plana eitthvað, hitting..hvernig væri að fá sumarbústað í Skagafirðinum??
Hairgirl
Sófus Vistarson
06. janúar 2008 klukkan 03:13
jæja gott fólk.. nú held ég að Akureyri sé bara málið... eins og skoðunarkönnunin segir klárlega hérna á síðunni!! haldiði ekki að ég sé búin að fá Höllu klaufa til að skoða ræktilega að koma til Akureyri!!! JÁ SÆLL!!! já fínt! hehe.. nú held ég bara að allir ættu að taka sig til og koma til höfuðborg norðursins!!! hehe ég og Davið reyndum nú að segja ykkur þetta frá upphafi.. en já..seint koma sumir en koma þó!!! ég vona bara að allir verði komir hingað á endanum svo að við getum haldið gott djamm hérna saman!! jæja.. ætli það sé ekki málið að leggja sig eða setja inn eitt stykki blogg á síðunni minni??? æi.. ég held að seinni kosturinn verði fyrir valinu! :)
out
Eyja_Dísa
Sófus Vistarson